Mundu
að nýta Sæludaga
vel og gera þá algjörlega
að þínum
dögum, því þarna
gefst þér tækifæri á að láta
drauma þína
rætast, og verða
loksins að veruleika
með hjálp hinnar
frábæru sæludaganefndar.
Á hverri vorönn býður FB upp á Sæludaga en þá er almenn kennsla felld niður og sitthvað óhefðbundnara í boði. Þetta árið verða Sæludagar þriðjudaginn 8. mars og miðvikudaginn 9. mars.
Hver nemandi getur valið mest þrjá hópa, einn hóp fyrir hádegi og annan eftir hádegi á þriðjudeginum 8. mars og einn hóp fyrir hádegi miðvikudaginn 9. mars.
Skráning í hópa hefst kl: 13:00 þriðjudaginn 1. mars. Þá verður að hafa hraðar hendur og finna þann hóp sem hentar þér og getur aukið gleði þína og visku. Í suma hópa er nefnilega takmarkaður fjöldi og þá gildir reglan að fyrstir koma fyrstir fá.
Sæludaganefnd óskar ykkur gleðilegra Sæludaga og vonar að þið hafið gagn og gaman af.
Reglur varšandi Sęludaga
Mæting verður skráð á sæludögum af kennurum skólans. Nemendur sem mæta í alla 3 hópana munu geta fengið niðurfellingu á sem nemur 12 fjarvistarstigum, 4 fjarvistarstig fyrir hvern hóp. Fjarvistir verða felldar niður í lok annar.