Sæludagar verða 8. og 9. mars næstkomandi. Þá verður hefðbundið skólastarf brotið upp og nemendum boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Nemendum gefst kostur á að fara í ýmsa hópa, eins og sirkuskennslu, Bláa lónið, jákvæða sálfræði, jeppaferð, japönskukennslu ofl.
Hver einstaklingur á að velja sér 3 hópa. Hóparnir verða eftir hádegi á mánudeginum 8. mars, kl:9 þriðjudaginn 9.mars og kl:13 þriðjudaginn 9. mars.
Nemendur geta fengið felldar niður fjarvistir ef þeir mæta í hópa. Mæting í hvern hóp jafngildir 4 kennslustundum þannig að Sæludagar jafngilda að fjarvistir úr 12 kennslustundum séu felldar niður. Fjarvistir eru felldar niður í lok annar.
Sæludagar hefjast á Sæludagahátíð í íþróttahúsinu kl. 12:00 mánudaginn 8. mars. Nemendur eiga að mæta í tíma 11:25 og síðan er farið út í íþróttahús. Hópastarf hefst svo eftir setningu sæludaga.
|